Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:21 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Samkvæmt niðurstöðu greiningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins er útlit fyrir að kaupmáttur heimila aukist að nýju á árinu, sé tekið mið af nýundirrituðum kjarasamningum á almennum markaði. Áætla megi að ráðstöfunartekjur meðaleinstaklings á almennum vinnumarkaði verði um það bil 50 þúsund krónum meiri í hverjum mánuði í ár en í fyrra, bæði vegna hækkunar með nýjum kjarasamningum og breytinga í tekjuskattskerfinu þar sem persónuafsláttur og þrepamörk hækka um 10,7%.
Í niðurstöðu greiningarinnar kemur einnig fram að launahækkanir umfram þær spár sem hafa legið til grundvallar hagstjórnarákvörðunum séu til þess fallnar að valda meiri verðbólgu en ella. Engu að síður er nú útlit fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann, áður en tekið er tillit til vaxtagjalda, aukist nokkuð á árinu og að kaupmáttarrýrnun undanfarinna missera verði meira eða minna endurheimt.
Þá kemur fram að miðað við niðurstöður nýrra kjarasamninga er útlit fyrir að hækkun launavísitölu á almennum vinnumarkaði í ár verði sú mesta frá 2016. Um áramótin hafi jafnframt tekið gildi uppfærð viðmið í tekjuskattskerfinu þar sem persónuafsláttur og þrepamörk hækka um 10,7%. Persónuafsláttur sé nú um 60 þús. kr. á mánuði eða 6 þús. kr. hærri en 2022. „Áætla má, miðað við niðurstöður launarannsóknar Hagstofunnar og með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga, að ráðstöfunartekjur meðaleinstaklings á almennum vinnumarkaði verði u.þ.b. 50 þús. kr. meiri í hverjum mánuði í ár en í fyrra, þar af 8 þús. kr. meiri vegna uppfærðra viðmiða tekjuskatts,“ segir á vef ráðuneytisins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |