Fréttir | 09. janúar 2023 - kl. 20:01
Nýtt byggðarmerki og ný heimasíða

Skagabyggð hefur tekið í notkun nýja heimasíðu en á henni eru birtar fundargerðir sveitarstjórnar og annað efni sem sveitarfélagið telur mikilvægt að sé miðlægt fyrir íbúa. Heimasíðan er enn í þróun og því eru allar ábendingar um hana vel þegnar og skulu þær sendast beint á Erlu Jónsdóttur oddvita. Skagabyggð hefur líka fengið nýtt byggðarmerki sem hannað er af Birgi Breiðfjörð starfsmanni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga