Mynd: stjornarradid.is
Mynd: stjornarradid.is
Staðsetningar skrifstofu ráðherra vorið 2023
Staðsetningar skrifstofu ráðherra vorið 2023
Fréttir | 10. janúar 2023 - kl. 07:28
Færir ráðuneyti sitt tímabundið um allt land

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heldur áfram á þessu ári að færa skrifstofu sína tímabundið út á land, líkt og hún gerði í fyrra. Áslaug ákvað þegar hún tók við ráðuneytinu að það yrði vinnustaður án staðsetningar og með því að færa sig sjálf um set vill hún sýna fram á hversu gerlegt það er. Þannig ætlar hún að staðsetja skrifstofu sína víðs vegar um landi á kjörtímabilinu.

Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar sem öll áhugasöm eru velkomin í stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Þá verða fyrirtækjaheimsóknir einnig hluti af dagskrá ráðherra. Áslaug ætlar til dæmis að staðsetja skrifstofu sína 10. maí á Hvammstanga og 11. maí í Skagafirði.

„Hugmyndin kviknaði þegar ég var að hugsa hvernig ráðuneyti sem væri búið til árið 2022 myndi starfa. Með þessu kynnist ég enn betur starfsemi sem tengist ráðuneytinu um allt land og fæ tækifæri til að prófa að starfa annars staðar en í Reykjavík,“ segir ráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í fyrra.

Staðsetningar skrifstofu ráðherra vorið 2023:

Borgarbyggð – miðvikudagur 11. janúar
Kópavogur – mánudagur 30. janúar
Rangárþing eystra – 23. febrúar
Grindavík – fimmtudagur 2. mars
Fjarðabyggð – föstudagur 17. mars
Fjallabyggð – þriðjudagur 28. mars
Hornafjörður – mánudagur 17. apríl
Vesturbyggð – fimmtudagur 27. apríl
Húnaþing vestra – miðvikudagur 10. maí
Skagafjörður – fimmtudagur 11. maí
Norðurþing – mánudagur 29. maí

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga