Afgreiðslan á Blönduósi
Afgreiðslan á Blönduósi
Fréttir | 28. janúar 2023 - kl. 15:35
Breyttur afgreiðslutími á Skagaströnd og betri bankaþjónusta á Blönduósi
Tilkynning frá Landsbankanum

Afgreiðslutími Landsbankans á Skagaströnd mun frá og með 30. janúar næstkomandi breytast og verður afgreiðslan eftir það opin á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 12-15.

Á sama tíma verður tekin í notkun nýr hraðbanki í verslunarkjarnanum Húnabraut 4 á Blönduósi. Í þjónusturými á sama stað mun starfsfólk bankans veita viðskiptavinum á Blönduósi ráðgjöf og aðstoð á þriðjudögum og fimmtudögum, frá kl. 12-15.

Landsbankinn hætti að veita póstþjónustu á Skagaströnd þann 19. janúar síðastliðinn.

Hraðbankinn aðgengilegur allan sólarhringinn

Hraðbankinn verður aðgengilegur allan sólarhringinn. Í honum verður hægt að taka út og leggja inn reiðufé, borga reikninga og millifæra. Í þjónusturými við hraðbankann munu viðskiptavinir einnig geta fengið ráðgjöf frá þjónustufulltrúum og aðstoð, t.d. við að nýta sér hraðbankann, Landsbankaappið og aðrar stafrænar lausnir bankans.

Bankaþjónusta hefur breyst mikið á undanförnum árum. Flest notum við símann eða tölvuna til að sinna fjármálunum en stundum þurfum við að komast í bankann til að fá ráðgjöf og aðstoð. Með því að opna hraðbanka á Blönduósi og bjóða þar ráðgjöf og þjónustu tvisvar í viku, viljum við bæta þjónustuna við íbúa á Norðvesturlandi og vonumst eftir að sem flestir sláist hóp ánægðra viðskiptavina Landsbankans.

 

 

Aukaefni:

Afgreiðslutímar Landsbankans á Skagaströnd og Blönduósi:

Skagaströnd:

  • Mánudagar: Opið frá kl. 12-15.
  • Miðvikudagar: Opið frá kl. 12-15.
  • Föstudagar: Opið frá kl. 12-15.

Blönduós:

  • Þriðjudagar: Opið frá kl. 12-15.
  • Fimmtudagar: Opið frá kl. 12-15.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga