Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:31 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:31 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:31 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:31 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:31 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:31 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Á fimmta, sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar komu út allmargar bækur með margs konar fróðleik um húnvetnska sagnfræði og fleira. Höfundar voru fjölmargir en langafkastamestur þeirra var Magnús Björnsson bóndi og fræðimaður á Syðra-Hóli.
Upphafið að þessari útgáfu átti Sögufélagið Húnvetningur en síðan tóku ýmsir aðilar við. Þessar bækur eru fyrir löngu ófáanlegar og því hætta á að efnið lendi í glatkistu tímans.
Á Íslandi eru m.a. tvær vefsíður þar sem hægt er að skanna inn bækur og tímarit og gera það efni aðgengilegt öllum almenningi. Þetta er síðurnar www.baekur.is og www.timarit.is.
Á árinu 2022 tók stjórn Sögufélagsins Húnvetnings, í samvinnu við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, ákvörðun um að kosta skönnun þessara bóka og koma þeim á veraldarvefinn, svo Húnvetningar og aðrir landsmenn hafi aðgang að þessum fróðleik. Nú er þessu verkefni lokið.
Eftirtaldar bækur og tímarit eru því aðgengilegar á eftirfarandi vefsíðum:
- Svipir og sagnir – Þættir úr Húnavatnsþingi. Útg. 1948
- Svipir og sagnir II - Hlynir og hreggviðir. Útg. 1950
- Svipir og sagnir III - Troðningar og tóftarbrot. Útg. 1953
- Svipir og sagnir IV - Búsæld og barningur. Útg. 1955
- Svipir og sagnir V - Fortíð og fyrirburðir. Útg. 1962
- Mannaferðir og fornar slóðir. Útg. 1957
- Hrakhólar og höfuðból. Útg. 1959
- Feðraspor og fjörusprek. Útg. 1966
- Húnvetninga ljóð. Útg. 1955
- Brandsstaða annáll. Útg. 1941
Húnvetningur, ársrit 1956, 1957, 1960
Stjórn Sögufélagsins Húnvetnings hvetur allt áhugafólk um húnvetnsk fræði til að kynna sér þetta efni og fræðast þannig um sögu okkar og menningu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |