Dr. Bettina Scholz. Mynd: skagastrond.is
Dr. Bettina Scholz. Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 30. janúar 2023 - kl. 10:25
BioPol fær 64,8 milljóna styrk frá Rannís

Dr. Bettina Scholz starfsmaður sjávarlíftæknisetursins BioPol á Skagaströnd hefur, ásamt samstarfsaðilum, hlotið 64,8 milljóna rannsóknastyrk frá Rannsóknasjóði Rannís. Rannsóknaverkefnið er til þriggja ára og dreifist því styrkupphæðin á árin 2023-2025. Dr. Scholz mun leiða hóp samstarfsaðila sem munu koma að mismunandi þáttum rannsóknaverkefnisins. Innlendir samstarfsaðilar eru: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, Hafrannsóknastofnun og Tæknisetur. Erlendir samstarfsaðilar verkefnisins starfa við háskóla og rannsóknastofnanir m.a í Þýskalandi, Austuríki, Portúgal og Noregi. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Verkefnið ber heitið: Per og pólýflúoroalkýlefni hitta fyrir kílisþörunga kaldtempraða beltisins og tengdar samlífisverur: Uppsöfnunarleiðir og áhrif á hreysti og auðkenningu.

Per og pólýflúoroalkýlefni (PFAS) eru meðal flókinna blanda mengunarefna sem fundist hafa í yfirborðs- og grunnvatni um allan heim og jafnframt í vefjum fiska, fugla og sjávarspendýrum. Sýnt hefur verið framá að ákveðinn hópur þessara efna veldur truflun í lykilstarfsemi frumna og geta valdið neikvæðum líffræðilegum áhrifum í dýrum og mönnum. Í verkefninu verða lifandi kísilþörungar úr stofnasafni BioPol notaðir til þess að reyna að varpa ljósi á áhrif þessara efna á líf í sjó og hugsanlegar vistfræðilegar hættur sem því tengjast.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga