Birgir R. Rafnsson útibússtjóri, Monika Tischleder, Signý “sk Richter starfsmenn og Jóhannes Torfason framkvæmdastjóri Ámundakinnar.
Birgir R. Rafnsson útibússtjóri, Monika Tischleder, Signý “sk Richter starfsmenn og Jóhannes Torfason framkvæmdastjóri Ámundakinnar.
Jóhannes afhendir Birgi sérsmíðaðan lykil
Jóhannes afhendir Birgi sérsmíðaðan lykil
Fréttir | 31. janúar 2023 - kl. 14:16
Landsbankinn opnar á Húnabraut 4
Frá Ámundakinn

Í  dag, þriðjudaginn 31. janúar opnaði Landsbankinn nýjan hraðbanka og þjónustuskrifstofu á Húnabraut 4.

Það er ánægjulegt fyrir okkur sem vinnum með málefni Ámundakinnar að bjóða  Landsbankann velkominn til starfa á Húnabraut 4.

Það er augljóst hagræði af því að fólk geti nálgast sem fjölþættasta þjónustu undir sama þaki. Þá er og mikilvægt að geta á nýjan leik sótt ráðgjöf og persónulega  fjármálaþjónustu á Blönduósi.

Landsbankinn fagnar því líka að geta boðið sína þjónustu og vera kominn í þann góða hóp fyrirtækja sem starfar á Húnabraut 4.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga