Fréttir | 07. febrúar 2023 - kl. 08:18
Ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga í dag frestast til fimmtudagsins 9. febrúar
Tilkynning frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra

Vegna veðurútlits hefur fyrirhugaðri ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga þriðjudaginn 7. febrúar verið frestað til fimmtudagsins 9. febrúar nk.

Þjónustuþegum er bent á að beina erindum sínum, sem eigi þola bið, rafrænt á netfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is eða hafa samband við aðalskrifstofu embættisins í síma 458-2500. Reynt verður eftir fremsta megni að leysa úr þeim erindum sem berast með þessum hætti.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga