Fréttir | 08. febrúar 2023 - kl. 09:29
Þrettán gjaldfrjáls námskeið í boði

Stéttarfélögin Aldan, Kjölur, Samstaða, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum á þrettán námskeið (sjö vefnámskeið og sex staðnámskeið), þeim að kostnaðarlausu, og hafa þau aldrei verið fleiri. Námskeiðin eru haldin á vegum Farskólans á Norðurlandi vestra en þau eru öllum opin og geta aðrir en félagsmenn þessara félaga kannað rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Skráning fer fram á vef Farskólans en einnig er hægt að hringja í síma 455 6010, senda póst á farskolinn@farskolinn.is eða senda skilaboð á facebooksíðu Farskólans.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga