Mynd: FB/AðdáendasÃða Kormáks
Fréttir | 08. febrúar 2023 - kl. 16:24
Kormákur Hvöt heldur áfram að styrkja liðið fyrir komandi átök í 3. deild karla í fótbolta í sumar. Nýverið var gengið frá samningum við vinstri bakvörðinn Mateo Climent frá Spáni. „Mateo þessi þykir öflugur í háloftunum, ásamt því að vera öryggið uppmálað með bolta í fótum og áhættufælinn mjög í varnarleik sínum,“ segir í tilkynningu frá meistaraflokksráði Kormáks Hvatar.