Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 08. mars 2023 - kl. 07:24
Farsældarteymi Húnaþings vestra

Á vef Húnaþings vestra er sagt frá starfi farsældarteymis sveitarfélagsins, sem starfar samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Helstu verkefni farsældarteymis eru að fara yfir og greina þjónustuþætti er snerta öll börn í Húnaþingi vestra og gera tillögur að leiðum til að styðja þau í leik og starfi. Farsældarteymið vinnur nú að verklagi samþættingar vegna barna í móðurkviði til 18 ára aldurs.

Farsældarteymið lagði nýverið fram tillögur að aukinni fagþjónustu samkvæmt greiningu á þjónustuþörf nemenda grunn- og leikskóla. Þar er meðal annars lagt til að ráðinn verði þroskaþjálfi í fullt starf.

Það verður einnig hlutverk farsældarteymis að kynna þjónustu og verklag fyrir íbúum sveitarfélagsins og verður það gert á sérstöku svæði á heimasíðu Húnaþings vestra.

Í farsældarteymi Húnaþings vestra sitja Anton Scheel Birgisson, Eydís Bára Jóhannsdóttir, Guðný Kristín Guðnadóttir, Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, Henrike Wappler, Kristinn Arnar Benjamínsson, Liljana Milenkoska og Sigurður Þór Ágústsson.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga