Krakkarnir fengu að spreyta sig á kínverskri leturgerð. Mynd: hofdaskoli.is
Krakkarnir fengu að spreyta sig á kínverskri leturgerð. Mynd: hofdaskoli.is
Fréttir | 13. mars 2023 - kl. 15:39
Ómetanlegt samstarf Höfðaskóla og Nes listamiðstöðvar

Nemendur í myndmennt í Höfðaskóla á Skagaströnd fengu í síðustu viku að fara í Nes listamiðstöð til að spreyta sig á kínverskri leturgerð hjá Martin og Wen-Hsi. Þá lærðu nemendurnir um hina ýmsu siði og öðruvísi menningu fólks sem er frá Asíu, m.a. um það hvernig nýju ári er fagnað og hvaða stjörnuspá er farið eftir í heimshlutanum. Martin og Wen-Hsi búa í Bretlandi en Wen-Hsi er upprunalega frá Taívan.Sagt er frá þessu á vef Höfðaskóla.

Síðan fengu nemendur kennslu í þeirri sérstöku tækni sem notuð er við kínverska leturgerð. Nemendur máluðu með bleki á rauðan pappír, sem er gerður úr hrísgrjónum og bómull, með penslum úr úlfa og kinda hárum sem Wen-Hsi og Martin komu með frá Taívan.

Nemendur æfðu sig í að mála tákn sem þýða: Að eilífu, Mikla lukku og Vor, en þessi orð eru notuð til að skreyta hús fólks sem heldur upp á áramótin með asískum sið.

„Öll stóðu sig frábærlega og öll sýndu þessu verkefni mikinn áhuga og höfðu gaman af,“ segir á vef Höfðaskóla.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga