Fréttir | 14. mars 2023 - kl. 10:03
Skagaströnd auglýsir námsstyrki

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum námsstyrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi. Nemendur sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á námsstyrk. Umsóknum um styrki þarf að skila á netfangið skagastrond@skagastrond.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins og er umsóknarfrestur til og með 31. mars næstkomandi.

Fram kemur á vef Skagastrandar að umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar er veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu þess.

Reglur um styrkina má finna hér og umsókn um styrk má finna hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga