Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:35 0 0°C
Laxárdalsh. 14:35 0 0°C
Vatnsskarð 14:35 0 0°C
Þverárfjall 14:35 0 0°C
Kjalarnes 14:35 0 0°C
Hafnarfjall 14:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
Tilkynningar | 15. mars 2023 - kl. 14:06
Þátttakendur óskast í kvennafjölmenningarverkefni

Ert þú kona búsett í Húnaþingi vestra en fædd og uppalin erlendis? Ef svarið er já þá viljum við endilega fá þig með í ljósmyndaverkefni sem verður svo að stórkostlegri ljósmyndasýningu sem opnar á Unglist – Eldi í Húnaþingi sumarið 2023.

Sveitarfélagið Húnaþing vesta er í samstarfi við Gretu Clough og listamanninn Juanjo Ivaldi Zaldívar. Með samstarfi þessara þriggja aðila er ætlunin að gera ljósmyndasýningu og vonandi bók um konur af erlendum uppruna sem  búsettar eru í Húnaþingi vestra. Myndirnar munu sýna á heiðarlegan og fallegan hátt uppruna og venjur kvennanna og fagna framlagi þeirra til fjölmenningar hér í Húnaþingi vestra. Einnig vonumst við til að sýningin og bókin muni opna á umræðuna um stöðu erlendra kvenna á svæðinu og upplifun þeirra á íslensku samfélagi. Markmið okkar er að hitta og ljósmynda allar konur af erlendum uppruna sem búa á svæðinu.

Við viljum sýna þátttakendur á sínum uppáhalds stað. Þar sem hver mynd mun segja einstaklingssögu sem aðeins ljósmyndir geta kallað fram. Þegar allt er svo sett saman í eina heild með sýningu er ætlunin sú að skýr mynd sé gefin af fjölmenningunni og öllum þeim mannauði sem býr í Húnaþingi vestra og er saman komin alls staðar að úr heiminum.

Áður en ljósmyndunin hefst verður spjallað lítillega við þátttakendur um upplifun þeirra á því að lifa, búa og starfa í Húnaþingi vestra og um líf þeirra áður en þær fluttu hingað og ástæður þess að sú ákvörðun var tekin að flytjast á milli landa.

Okkar stærsta ósk er sú að verkefnið geti svo haldið áfram þar sem næsta sýning mun taka fyrir erlenda karlmenn á svæðinu og að lokum börnin sem ýmist flytjast á svæðið eða eru fyrsta kynslóð erlendra íbúa sem fæðast á svæðinu. Draumurinn: 3 sýningar, 3 bækur sem allar stefna að sama markmiði. Fagna fjölmenningunni, lyfta upp svæðinu okkar og vekja samtal um að það geta allir búið allsstaðar.

Ljósmyndasýningin mun vera partur af Eldur í Húnaþingi árið 2023 og stefnum við á að hefja ljósmyndun og viðtöl í apríl 2023.

Endilega tilkynnið þátttöku eða óskið eftir frekari upplýsingum hjá Gretu Clough á netfanginu handbendi@gmail.com eða hjá Þórunni Ýr Elíasdóttur tengilið Húnaþings vestra á netfangið thorunn.yr@hunathing.is

Hlökkum til að heyra í sem allra flestum, þetta verður FRÁBÆRT

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið