Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:20 0 0°C
Laxárdalsh. 12:20 0 0°C
Vatnsskarð 12:20 0 0°C
Þverárfjall 12:20 0 0°C
Kjalarnes 12:20 0 0°C
Hafnarfjall 12:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Mynd. FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Mynd. FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 17. mars 2023 - kl. 14:05
Löggæsluhundar nýtast í fjölmörg verkefni

Lögreglan á Norðurlandi vestra, ásamt Menntasetri lögreglunnar, hefur undanfarna mánuði tekið þátt í lögregluhunda verkefni ásamt pólsku lögreglunni. Verkefnið gengur undir vinnuheitinu „K9 Europe“ og fjallar um þjálfun og notkun lögregluhunda. Í desember síðastliðnum komu tíu lögreglumenn frá Póllandi til Íslands og kynntu sér starfsemi löggæsluhunda og tókst sú heimsókn með ágætum, að því er fram kemur í facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Í síðustu viku sóttu svo tíu hundaþjálfarar lögreglu, tollgæslu og Fangelsismálastofnunar, auk fulltrúa Menntaseturs lögreglunnar Pólverja heim. Í facebookfærslu lögreglunnar segir að móttökurnar sem hópurinn fékk hafi verið sérlega góðar.  

Þar segir einni: „Samstarf sem þetta er mikilvægt fyrir starfsemi lögreglunnar ekki síst m.t.t. framþróunar. Í Póllandi eru starfræktir fimm lögregluskólar og heimsótti hópurinn m.a. einn þeirra skóla. Þar voru nemendur um eitt þúsund talsins og var aðstaða þar öll eins og best verður á kosið. Þá var sóttur heim hundaskóli lögreglunnar en þar eru að jafnaði fimmtíu til eitt hundrað nemendur í senn ásamt hundum. Það hefur sýnt sig í umræddu verkefni að við getum lært margt af pólsku starfssystkinum okkar og eins þau af okkur og er markmiðið m.a. að deila þekkingu og reynslu í þeirri von að efla enn frekar starf löggæsluhunda landanna. 

Margir kunna að halda að löggæsluhundar nýtist einvörðungu til að finna fíkniefni og sprengiefni. Því fer hins vegar fjarri því í löndunum í kringum okkur þá eru hundar nýttir í svo mikið meira er snýr að löggæslu, eins og valdbeitingu, mannfjöldastjórnun, lífsýnaleitir, spor og -víðavangsleitir, leitir af tölvuíhlutum (minniskortum og fl.) og margt fleira. Vonandi munu aukin og fjölbreytt verkefni felast í framtíð löggæsluhunda á Íslandi. Verkefnið „K9 Europe“ mun halda áfram og fyrirhugaðar eru fleiri heimsóknir og vinnulotur á næstu misserum.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið