Fréttir | 28. mars 2023 - kl. 16:49
Starfshópur um stefnumótun í málefnum aldraðra

Á fundi öldungaráðs Húnabyggðar í gær var lagt til að stofnaður verði starfshópur sem hefur það hlutverk að vinna að stefnumótun í málefnum aldraðra í sveitarfélaginu. Markmiðið er að efla lífsgæði fólks með bættri þjónustu, aukinni umræðu og meiri samfélagsþátttöku eldri borgara. Lagt var til að starfshópinn skipi fjórir fulltrúar, einn frá hverjum hópi hagaðila ráðsins.

Tilnefndar voru Helga Margrét Jóhannesdóttir frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Ásta Þórisdóttir frá Félags- og skólaþjónustu bs., Ásgerður Pálsdóttir frá Félagi eldri borgara í Húnabyggð og Ásdís Ýr Arnardóttir frá öldungaráði Húnabyggðar.

Starfshópurinn mun vinna náið með öldungaráði og stefnt er að því að ljúka drögum að stefnumótun í málefnum aldraðra í september á þessu ári.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga