Fjör í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Mynd: FB/Frjálsíþróttadeild Hvatar
Fjör í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Mynd: FB/Frjálsíþróttadeild Hvatar
Fréttir | 29. mars 2023 - kl. 09:25
Velheppnaðir Krakkaleikar Hvatar og Vilko

Krakkaleikar Hvatar og Vilko voru haldnir í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á sunnudaginn en þeir voru fyrir krakka á aldrinum 5 til 9 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem leikarnir eru haldnir og heppnuðust vel, að því er segir á facebooksíðu frjálsíþróttadeildar Hvatar. Keppt var í 30 metra hlaupi, langstökki án atrennu, skutlukasti, boltakasti og boðhlaupi. Eftir keppnina skoruðu krakkarnir á foreldra sína í reiptog. Að lokum fengu allir viðurkenningarskjal með árangri sínum og verðlaunapening.

Á facebooksíðu frjálsíþróttadeildar Hvatar má sjá myndir frá leikunum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga