Fréttir | 25. apríl 2023 - kl. 13:15
Eitt lag enn í Blönduóskirkju

Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Blönduóskirkju í kvöld klukkan 20. Tónleikarnir bera yfirskriftina Eitt lag enn – Eurovision glimmer og gleði en á fjölbreyttri efnisskrá verða Eurovision lög. Stjórnandi kórsins er Helga Rós Indriðadóttir og stjórnandi hljómsveitar er Rögnvaldur Valbergsson, en auk hans er hún skipuð Steini Leó Sveinssyni og Sigurði Björnssyni.

Á fiðlu leikur Kristín Halla Bergsdóttir og Anna Karítas Ingvarsdóttir blæs í þverflautu. Einsöngvarar eru Elín Jónsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir og systurnar Gunnhildur og Kristvina Gísladætur. Aðgangseyrir er 4.000 krónur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga