Skjáskot úr Landanum. Mynd: ruv.is
Skjáskot úr Landanum. Mynd: ruv.is
Fréttir | 25. apríl 2023 - kl. 13:41
Afmælissýning Neista í Landanum

Hestamannafélagið Neisti fagnar 80 ára afmæli á þessi ári og hélt nýverið afmælissýningu í reiðhöllinni í Arnargerði. Dagskráin var fjölbreytt og samanstóð af börnum og unglingum að uppskera vetrarstarfið, hjónum, systrum, fjölskyldum og öðru frábæru fólki, eins og segir á vef Neista. Sjónvarpsþátturinn Landinn mætti á svæðið og spjallaði m.a. við Selmu Erludóttur sem situr í stjórn Neista. Afraksturinn mátti svo sjá í Landanum síðastliðið sunnudagskvöld.

Þáttinn má sjá hér.

Sjá nánari umfjöllun um afmælissýninguna á vef Neista.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga