Tilkynningar | 26. apríl 2023 - kl. 11:52
Við leitum að frístundaleiðbeinanda til starfa í Skólabúðum UMFÍ. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Frístundaleiðbeinandi vinnur með ungmennum á námskeiðum, hefur umsjón með dagskrá og á í samskiptum við þá sem fylgja nemendahópum í Skólabúðir.
Í Skólabúðir UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði koma nemendur í 7. bekk úr skólum af öllu landinu og taka þátt í skipulögðu starfi. Við gerum kröfu um að viðkomandi hafi reynslu af því að starfa með ungmennum, sé reyklaus og góð fyrirmynd og hafi hreint sakavottorð í samræmi við íþrótta- og æskulýðslög.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eru skilyrði (á sviði kennslu, íþrótta eða tómstunda)
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Reynsla og þekking á þjálfun kostur
- Gott er að viðkomandi hafi frumkvæði og hressleika í fyrirrúmi
- Sjálfstæði í störfum er kostur
- Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni og þjónustulund og hafa gaman af því að vinna með fólki.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl.
Allar upplýsingar eru veittar í síma 861 3379 og umsóknir sendar á siggi@umfi.is.