Fréttir | 02. maí 2023 - kl. 07:04
Boða hækkun afurðaverðs í haust

Kjarnafæði Norðlenska (KN) og dótturfélög þess, Norðlenska matborðið og SAH Afurðir, hafa gefið út lágmarksverð fyrir dilkakjöt á komandi sláturtíð í haust. Verð á innleggi mun hækka að lágmarki um 5% umfram verðlagsþróun frá síðustu sláturtíð. Þetta kemur fram á vef SAH Afurða. Þar segir að miðað við núverandi breytingar á verðlagi frá fyrra ári, ársverðbólgu í mars 2023, sé hækkunin að lágmarki um 15% á meðalverði.

Þá segir: „Með þessari ákvörðun er verið að tryggja að tekjur sauðfjárbúa sem leggja inn hjá samstæðu KN hækka umfram verðlagsþróun milli ára, miðað við sama innlegg. Vonir standa til þess að markaðsaðstæður verði með þeim hætti að unnt verði að hækka innlegg haustið 2023 umfram áðurnefnda lágmarkshækkun.“

Álag í komandi sláturtíð má sjá á vef SAH Afurða.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga