Fréttir | 02. maí 2023 - kl. 14:43
Blóðbankabíllinn á Blönduósi 10. maí

Blóðbankabíllinn verður opinn fyrir blóðsöfnun á N1 planinu á Blönduósi miðvikudaginn 10. maí næstkomandi frá klukkan 14-17. Blóðbankabíllinn er útibú frá Blóðbankanum og er í honum góð aðstaða til blóðsöfnunar. Bíllinn er bankanum afar mikilvægur til að nálgast nýja blóðgjafa og auðvelda virkum blóðgjöfum að gefa blóð.

Blóðbankabíllinn hefur komið á Blönduós með reglubundnum hætti í mörg ár. Blóðgjöf er raunveruleg lífgjöf og getur ein blóðgjöf bjargað allt að þremur lífum. Því skipti hver og einn blóðgjafi miklu máli. Til þess að anna eftirspurn eftir blóði þarf u.þ.b. 2000 nýja blóðgjafa á hverju ári til viðbótar við þann hóp nú þegar gefur blóð.

Allir eru velkomnir í Blóðbankabílinn, nýir sem virkir blóðgjafar.

Kynntu þér Blóðbankann nánar hér. Hann er einnig á Facebook.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga