Tilkynningar | 02. maí 2023 - kl. 14:46
Starf við þrif hjá Textílmiðstöð Íslands

Textílmiðstöð Íslands, Blönduósi, óskar eftir að ráða starfsmann (geta verið fleiri en einn) frá og með 25. maí nk., við þrif í Kvennaskólanum, Árbraut 33 & 35. Um er að ræða 50% starf. Vinnutími er sveigjanlegur nema í lok hvers mánaðar, því nýir listamenn koma í byrjun hvers mánaðar. Starfsmanni býðst að sækja þau námskeið sem eru í boði í TextílLabinu.

Áhugasamir vinsamlega sendið umsókn á Jóhönnu E. Pálmadóttur verkefnastjóra, netfang; johanna@textilmidstod.is fyrir 10. maí 2023.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga