Fréttir | 04. maí 2023 - kl. 14:07
Vortónleikaröð Tónlistarskóla A-Hún.

Vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga hefjast í Blönduóskirkju klukkan 17 í dag og koma þá fram söngnemendur í Húnabyggð. Mánudaginn 15. maí koma fram á sama stað og sama tíma hljóðfæranemendur í Húnabyggð. Þriðjudaginn 16. maí er komið að tónleikum nemenda á Skagaströnd og fara þeir fram í Hólaneskirkju klukkan 17. Skólaslit tónlistarskólans fara svo fram sunnudaginn 21. maí klukkan 17 í Hólaneskirkju. Allir er hjartanlega velkomnir á tónleikana.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga