Fréttir | 04. maí 2023 - kl. 15:02
Hefja vinnu við stefnumótun Húnabyggðar

Húnabyggð er að fara af stað með stefnumótunarvinnu fyrir sveitarfélagið og ætlar að gefa öllum íbúum þess tækifæri til að taka þátt og setja mark sitt á stefnumótunina og nýja framtíðarsýn fyrir nýtt sveitarfélag. Haldinn verður opinn íbúafundur um stefnumótunina í Félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 11. maí klukkan 17-19. Allir sem áhuga hafa eru hvatir til þátttöku og er öllum hugmyndum fagnað sem fram koma, að því er segir á vef Húnabyggðar.   

Þar kemur fram að á næstu mánuðum eru framundan ýmiss konar fundir þar sem mismunandi málefni verða tekin fyrir og verður byrjað á atvinnumálum. Atvinnumál verða því í forgrunni á fyrsta fundinum, þann 11. maí.

Á vef Húnabyggðar segir:

Við erum meðvituð um að nú stendur sauðburður yfir og að sauðfjárbændur eru uppteknir vegna hans. Engu að síður viljum við hefja þessa vegferð og munum sjá til þess að allir sem ekki komast núna fái önnur tækifæri til að vera með og koma sínum hugmyndum á framfæri. Til að auka líkurnar á því að allir geti verið með verður fundurinn einnig á Teams fyrir þau sem vilja það frekar. Stefnumótun er langhlaup, ekki síst ef horft er til innleiðingar en við sjáum fyrir okkur að næstu mánuðir fari í að safna saman upplýsingum frá íbúum, starfsmönnum og sveitarstjórnarfólki þannig að á haustmánuðum verði hægt að kynna fyrstu drög að nýrri stefnu sveitarfélagsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga