Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 05. maí 2023 - kl. 13:42
Skýrsla um Vatnsnesveg afhent innviðaráðherra

Í síðasta mánuði kom út skýrsla um mat á áhrifum og þörf á endurbyggingu Vatnsnesvegar með tilliti til samfélagsáhrifa. Skýrslan er unnin af Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir Húnaþing vestra og var lögð fram á fundi byggðarráðs sveitarfélagsins 17. apríl síðastliðinn. Nýverið var skýrslan afhent Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra með áskorun um að framkvæmdum við veginn verði þokað framar á samgönguáætlun.

Skýrsluna má lesa hér.

Í skýrslunni kemur m.a. fram að Vatnsvegur, sem er 70 kílómetra langur tengivegur með malarslitlagi að mestu, sé lífæð samfélagsins sem við hann býr fyrir daglegar þarfir s.s. atvinnu-, skóla- og þjónustusókn. Mikil ferðamannaumferð hafi aukið álag á veginn þannig að hann virðist ekki lengur þola umferðina og því sé ákveðnum þolmörkum ná. Þá segir í skýrslunni að færa megi fyrir því rök að endurbygging vegarins, einkum þess hluta hans þar sem umferð er mest og flestir búa, falli vel að megin markmiðum samgönguáætlunar um greiðfærni, öryggi, hagkvæmni, umhverfislega sjálfbærni og byggðaþróun. Endurbætur styðji markmið byggðaáætlunar um vinnu- og þjónustusókn og bæti aðstæður til að íbúar getið valið sér sem víðast búsetu við hæfi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga