Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 05. maí 2023 - kl. 14:45
Hagnaður af rekstri Skagastrandar

Sveitarfélagið Skagaströnd var rekið með 629 þúsund króna hagnaði í fyrra. Afkoman er mun betri en áætlun gerði ráð fyrir með viðaukum en hún hljóðaði upp á 73 milljón króna tap. Síðari umræða um ársreikning sveitarfélagsins 2022 fór fram á sveitarstjórnarfundi í gær og var hann samþykktur samhljóða. Samkvæmt honum voru rekstrartekjur í fyrra 792,1 milljón króna og rekstrargjöld ásamt afskriftum og fjármagnsgjöldum voru 791,5 milljónir króna.   

Rekstrartekjur hækka um 12,1% milli ára og hækkuðu útsvarstekjur um um 40,5 milljónir eða 13,4% og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hækkuðu um 5,3 milljónir eða 17,9%. Laun og launatengd gjöld voru 363,8 milljónir og hækkuðu um 31,3 milljónir milli ára eða um 9,4%. Gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga nam um 4,8 milljónir sem er um 14,2 milljónum undir áætlun. Annar rekstrarkostnaður nam 372,4 milljónum og hækkaði um 42,9 milljónir milli ára eða um 13%. Afskriftir ársins voru 46,5 milljónir og hækkuðu lítillega milli ára. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 4 milljónir og í takt við áætlun.

Í fundargerð sveitarstjórnar segir m.a. um ársreikninginn:

Jákvæð frávik frá áætlun eru í skatttekjum vegna hærri útsvarstekna og framlaga frá jöfnunarsjóði félagsþjónustu vegna endurútreiknings á framlögum vegna málefna fatlaðra, umferðar og samgöngumála vegna lægri kostnaðar við snjómokstur, breytingu á lífeyrisskuldbindingum og hjá hafnarsjóði vegna tekna af afla- og þjónustugjöldum. Helstu neikvæðu frávikin eru í atvinnumálum vegna gjaldfærslu í tengslum við sjóbaðaverkefni, í sameiginlegum kostnaði vegna launa og aðkeyptrar sérfræðiþjónustu og viðhaldi eignasjóðs.

Handbært fé sveitarfélagsins lækkaði um 156,9 milljónir milli áranna 2021 og 2022. Sveitarfélagið tók engin ný lán á árinu en nýtti rekstrarfé og laust fé í fjárfestingar. Þá lækkuðu skuldir við lánastofnanir um 16,1 milljón milli ára. Skuldahlutfallið, sem reiknað er í samræmi við reglur um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga var -1% í árslok 2022.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga