Fréttir | 07. maí 2023 - kl. 08:32
Götur sópaðar á Skagaströnd

Vorboðinn ljúfi, götusópurinn, verður á Skagaströnd mánudaginn 8. maí og er stefnt að því að búið verði að sópa allar götur í lok dags þriðjudaginn 9. maí. Til að verkið gangi vel fyrir sig þarf gott samstarf við íbúa. Gott er að leggja bílum sínum ekki á götum og gangstéttum meðan á sópun stendur.

Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar á vef Skagastrandar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga