Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samfylkingin hefur upp á síðkastið boðað til fjölda opinna funda um heilbrigðismál um land allt. Fundirnir eru opnir öllum og liður í nýju og umfangsmiklu málefnastarfi sem Kristrún Frostadóttir formaður flokksins hefur ýtt úr vör. Þrír slíkir fundir um heilbrigðismál verða á Norðurlandi vestra dagana 8. og 9. maí og fara þeir fram á eftirfarandi stöðum:
Kiljan á Blönduósi — kl. 17:00, mánudag 8. maí
Kaffi Krókur á Sauðárkróki — kl. 20:00, mánudag 8. maí
Sjávarborg á Hvammstanga — kl. 12:00, þriðjudag 9. maí
Kristrún mætir sjálf til leiks á fundunum á Norðurlandi vestra, þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi, til að taka samtalið við heimamenn og fylgja nýju málefnastarfi Samfylkingarinnar af stað. Hún leggur áherslu á að allir séu velkomnir og ekki verði spurt um flokksskírteini fólks.
Heilbrigðismálin efst á blaði
„Heilbrigðismálin og öldrunarþjónustan eru í forgrunni hjá okkur núna og alveg fram á haust. Fyrst förum við af stað með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu. Svo erum við með stýrihóp sem leiðir vinnuna og fundar líka með fólki af gólfinu og öðrum sérfræðingum úr heilbrigðiskerfinu,“ segir Kristrún í tilkynningu fyrir vefinn Húni.is.
„Ég hélt sjálf fjölda opinna funda um land allt á síðasta ári, meðal eftirminnilegan fund í Samstöðusalnum á Blönduósi, og þeir fundir höfðu mikil áhrif á mig. Svona viljum við gera þetta og við tökum vinnuna alvarlega; nú undirbúum við breytingar á sviði heilbrigðismála og það er ekki vanþörf á.“
Kristrún kemur til að hlusta
„Ég er ekki að koma til þess að messa yfir fólki. Þvert á móti, þetta eru alvöru samtalsfundir og núna erum við bara að koma til að hlusta. Þannig fáum við skýrari mynd af því hvað það er í raun sem helst brennur á almenningi í þessum málaflokki. Svo hefur fagfólk líka mætt vel á fundina og þaðan fáum við mikilvæga innsýn sem mun nýtast í vinnunni sem er framundan,“ segir Kristrún.
Á fundunum eru líka fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Formaður í stýrihópnum er Anna Sigrún Baldursdóttir sem er hjúkrunarfræðingur að mennt og leiðir nú öldrunarþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Hún vann áður meðal annars sem framkvæmdastjóri á Landspítala og sem aðstoðarmaður velferðarráðherra, Guðbjarts Hannessonar heitins, sem þá var oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Öllum velkomið að taka þátt
Kristrún leggur áherslu á að öllum sé velkomið að mæta á fundina og taka þátt. Ekki verði spurt um flokksskírteini fólks. „Nú erum við að opna flokkinn og leggjum áherslu á að taka samtal við fólkið í landinu. Ég bind miklar vonir við þessa vinnu,“ segir Kristrún sem bætir við að það sé strax farin að teiknast upp skýr mynd af af raunhæfum væntingum fólksins í landinu til heilbrigðisþjónustu.
„Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið.“
-Fréttatilkynning-
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |