Fréttir | 13. maí 2023 - kl. 20:53
Kormákur Hvöt heimsótti Víði í Garði í dag þegar leikið var í 2. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla 3. deild. Heimamenn komust yfir í leiknum með marki á 40. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik 1-0. Í seinni hálfleik bættu heimamenn við tveimur mörkum, það fyrra kom úr víti á 63. mínútu og seinna markið kom á 70. mínútu. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað enda veðrið ekki upp á sitt besta.
Næsti leikur Kormáks Hvatar verður á Sauðárkróksvelli laugardaginn 20. maí klukkan 15 gegn Elliða úr Reykjavík.