Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 15. maí 2023 - kl. 13:00
Heimasíða Húnaþings vestra aðgengileg á fjölda tungumála

Heimasíða Húnaþings vestra er nú aðgengileg á 20 tungumálum. Síðan hefur tengingu við þýðingarforrit Google (Google Translate) sem leyfir notendum á einfaldan hátt að skipta á milli tungumála. Þýðingin nær til texta á heimasíðunni sjálfri, ekki til PDF skjala sem þar eru vistuð.  „Við vonum að þessi viðbót bæti þjónustu sveitarfélagsins til íbúa sem hafa annað móðurmál en íslensku,“ segir á vef Húnaþings vestra þar sem sagt er frá þessu.

Þar er tekið fram að hafa ber í huga að þýðingar Google geta verið takmörkunum háðar en gefa engu að síður góða mynd af innihalds þess texta sem um ræðir.

Hnappur til að velja tungumál er efst, hægra megin á síðunni. Sjá mynd.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga