Fréttir | 27. maí 2023 - kl. 09:23
Opið hús í Nesi listamiðstöð á mánudaginn

Fjölbreyttur hópur listamanna maímánaðar í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd heldur opið hús mánudaginn 29. maí klukkan 16-18. Listamennirnir vinna við ritlist, hönnun, málun, dans og margt fleira. Upplagt er að enda hvítasunnuhelgina á því að heimsækja vinnustofuna í Nesi listamiðstöð á Fjörubraut 8, heilsa upp á listamennina og sjá verk þeirra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga