Fréttir | 29. maí 2023 - kl. 10:32
Kórtónleikar í Hólaneskirkju á fimmtudaginn

Kórtónleikar fara fram í Hólaneskirkju fimmtudagskvöldið 1. júní klukkan 20. Kirkjukór Hólaneskirkju flytur fjölbreytta dagskrá og verða nokkur sjómannalög á efnisskránni í tilefni sjómannadagsins. Kórnum til aðstoðar verða Jón Ólafur Sigurjónsson á bassa og Valtýr Sigurðsson á trommur.

Aðgangseyrir 2.500 krónur - enginn posi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga