Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 28. maí 2023 - kl. 12:49
Suðvestan hvassviðri í kortunum

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun sem tekur gildi á morgun 29. maí klukkan 15 og gildir til klukkan 10 þriðjudaginn 30. maí. Spáð er suðvestan hvassviðri 15-20 m/s og má búast við vindhviðum yfir 25 m/s við fjöll. Fólk er hvatt til þess að huga að lausamunum. Veðrið getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og eru ferðalangar því beðnir um að hafa varann á sér.

Gular veðurviðvaranir hafa einnig verið gefnar út fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland eystra á morgun.

Upplýsingar um veður má finna á www.vedur.is og um færð á vegum á www.umferdin.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga