Tilkynningar | 04. júní 2023 - kl. 10:30
Snyrtidagur í kirkjugarðinum
Frá stjórn

Á stjórnafundi Kirkjugarðs Blönduóss, sem haldin var 31. maí síðastliðinn, var samþykkt að hinn árlegi dagur snyrtimennskunnar í garðinum verði sunnudaginn 11. júní frá klukkan 12:00 til 16:00. Umsjónamaður garðsins ásamt stjórnafólki sem á heimagengt verður á staðnum og aðstoðar fólk ef óska er eftir því, annars erum við vön að finna okkur verkefni við þetta tækifæri.

Kör með mold, sandi og mulningi ásamt hjólbörum og verkfærum verður á staðnum ef fólk vill laga til leiði.

Tökum höndum saman eins og ávallt og gerum kirkjugarðinn okkar snyrtilegan með sumarblómum og lagfæringu fyrir 17 júní.

Sumarkveðja.
Stjórn Kirkjugarðs Blönduóss

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga