Tilkynningar | 04. júní 2023 - kl. 10:35
Sumaropnun Heimilisiðnaðarsafnsins 2023

Um þessar mundir eru 20 ár síðan hið nýja safnhús Heimilisiðnaðarsafnsins var tekið í notkun vorið 2003. Sumaropnun safnsins hófst þann 1. júní  og stendur til  31. ágúst. Safnið er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00.

Þótt safnið sé ekki formlega opið á öðrum tímum ársins er oft á tíðum óskað eftir móttöku hópa, ekki síst vor og haust. Má nefna að nú í apríl og maí mánuðum einum var tekið á móti um 300 gestum. Flestir þessara gesta, sem voru erlendir, höfðu lengri eða skemmri viðdvöl á Blönduósi og nutu þar bæði veitinga- og gistiþjónustu. Heimilisiðnaðarsafnið er augljóslega mikilvægur segull, sem dregur fjölmarga gesti að, til hagsbóta fyrir okkar samfélag.

Sumarsýning safnsins er yfirlitssýning á textílverkum Phillippe Ricart. Hann var einstakur handverks- og listamaður sem lagði áherslu á að viðhalda gömlum íslenskum handverkshefðum sem og  að nota íslenskt hráefni og efnivið eins og kostur var. Það er nýbreytni að nú er í fyrsta sinn sem eingöngu eru sýnd verk eftir karlmann, látinn einstakling, sem var af erlendu bergi brotinn en hafði búið á Íslandi frá árinu 1979.

Sýningin verður opnuð formlega miðvikudaginn 7. júní kl. 16:30

Það er enn og aftur ástæða til að hvetja heimafólk og gesti þeirra til að heimsækja safnið og njóta  þeirra gersema sem þar er að finna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga