Tilkynningar | 21. mars 2024 - kl. 13:58
Enn er möguleiki að sjá FEGRUNARMÖRK í Hillebrandtshúsi!
Um síðustu helgi var opnuð sýningin Fegrunarmörk í Hillebrandtshúsi á Blönduósi. Á sýningunni eru verk frá listafólki af svæðinu sem deila sýn sinni á mannlega fegurð. Yfir 40 manns mættu á opnunardaginn, nutu léttra veitinga og tóku þátt í að skapa lifandi myndverk á staðnum, afrakstur þess má sjá á sýningunni! Sýningin verður opin alla daga fram til laugardagsins 23. mars, kl. 16-18. Aðgangur er ókeypis - hvetjum alla til að mæta og styðja við fjölbreytt menningarlíf í héraði. 
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga