Tilkynningar | 31. mars 2024 - kl. 18:57
Gaukshreiðrið í Freyvangsleikhúsinu Eyjafirði
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra

Örfá sæti laus. Nýjar pantanir þurfa að berast fyrir næstkomandi mánudagskvöld. Góð þátttaka er í leikhúsferðina föstudaginn 5. apríl. Farið verður kl 15.00 frá Félagsheimilinu á Blönduósi. Þátttökugjald aðeins kr 11.000. Innifalið sæti í góðri rútu og aðgöngumiði að sýningunni. Borgist í rútunni.

Nýir þátttakendur tilkynnið á netfangið mao@centrum.is s. 898 5695  eða geitaskard@emax.is s. 897 4341. 

Stoppað verður á Akureyri góða stund svo fólk geti fengið sér kvöldverð eða aðra hressingu Áætluð heimkoma stuttu eftir miðnætti ef veður og færð eru góð.

Félagi eldri borgara í Húnaþingi.

Ferðanefndin

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga