Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 13:44
Húnaþing vestra gerir gjaldskrárbreytingar

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt gjaldskrárbreytingar vegna stöðuleikasamninganna sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu fyrir skömmu en þær miða að mestu við gjaldskrár er varða barnafjölskyldur. Þannig verður hækkunin 2,5% frá árinu 2023 í stað 5,5%, eins og áður hafi verið ákveðið, og taka breytingarnar almennt gildi 1. júní næstkomandi, með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í tekt við stöðugleikasamninganna.

Breytingarnar sem samþykktar voru af sveitarstjórn eru þessar:

  • Gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs verður lækkuð í heild sinni og hækkar um 2,5% frá árinu 2023.
  • Gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarfundastofu breytist með þeim hætti að gjald vegna mötuneytis grunnskólanema verður afnumið frá hausti og frístund lækkar frá haustönn. Verð vegna sumarfrístundar verður lækkað frá áður útgefinni gjaldskrá frá 1. júní. Aðrir liðir í gjaldskránni haldast óbreyttir.
  • Gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra hækkar um 2,5% frá árinu 2023 frá og með haustönn 2024 vegna þjónustu við börn að 18 ára aldri. Óbreytt gjaldskrá verður vegna hópkennslu sem var nýtt í gjaldskrá fyrir árið 2024, nemenda í forskóla og hljóðfæraleigu en þessi þjónusta hækkaði ekki í upphaflegri gjaldskrá fyrir árið 2024.
  • Gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns og félagsmiðstöðvar hækkar um 2,5% frá árinu 2023 og tekur breytingin í gildi þann 1. júní nk. Breytingin á við um útleigu á félagsmiðstöð, aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.
  • Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra breytist þann 1. júní vegna árskorta, en gjald vegna árskorta mun verða sama fjárhæð og hún var árið 2023. Aðrir liðir gjaldskrárinnar verða óbreyttir.
  • Fjárhæð frístundakorta árið 2024 verður hækkuð úr kr. 20.000 í kr. 25.000.

Tengd frétt:
Sveitarstjórn Húnaþings vestra ætlar að leggja sitt af mörkum til að tryggja stöðugleika

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga