Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 15:20
Engin sameining 1. júní næstkomandi

Ekki liggur fyrir hvenær boðað verður til íbúakosninga um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar en til stóð að hún færi fram í þessum mánuði og að sameining tæki gildi 1. júní næstkomandi, yrði hún samþykkt. Samstarfsnefnd um sameininguna, sem skipuð er átta fulltrúum, fjórum frá hvoru sveitarfélagi, hefur það verkefni að skipuleggja sameiningarvinnuna, m.a. að setja upp verk- og tímaáætlun og leggja fram sameiningartillögu.  

Í Morgunblaðinu um síðustu helgi er haft eftir nefndarmanni úr Skagabyggð að sameiningar sveitarfélaga séu flóknari en fólk hafi gert sér grein fyrir og að viðræður sameiningarnefndarinnar haldi áfram þó ekki sé búð að ákveða kosningadag.

Upplýsingar um gang sameiningarviðræðnanna hafa verið litlar sem engar og hefur t.d. ekki verið settur upp sérstakur vefur fyrir íbúa sveitarfélaganna til að fylgjast með gangi mála, líkt og gert var þegar Blönduósbær og Húnavatnshreppur voru í sameiningarferli. Þó má lesa af og til um málið, eða því tengt, í fundargerðum sveitarstjórna sveitarfélaganna.

Í fundargerð sveitarstjórnar Skagabyggðar frá 26. mars síðastliðnum kemur fram, undir dagskrárliðnum sameiningarmál, að beðið sé svara um fjárveitingu frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Í fundargerð byggðarráðs Húnabyggðar frá 13. mars síðastliðnum. sem lögð var fram til staðfestingar á sveitarstjórnarfundi Húnabyggðar á þriðjudaginn lýsir byggðarráð yfir áhyggjum af því að ekki komi til sérstök framlög til mögulegrar sameiningar vegna uppbyggingu grunninnviða í sveitarfélaginu. Byggðarráð bindur þó vonir við að möguleg skuldajöfnunarframlög verði til þess að brúa það bil þannig að uppbygging grunninnviða, svo sem bygging nýs leikskóla og stækkun grunnskóla, verði möguleg á næstu árum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga