Fréttir | 30. júlí 2008 - kl. 09:45
Grettishátíð um verslunarmannahelgina 1. - 4. ágúst
Tilkynning frá húskarli Grettis

Grettishátíð verður haldin að Laugarbakka í Miðfirði um verslunarmannahelgina 1. – 4. ágúst. Að þessu sinni er hátíðin helguð sagnaarfinum eða sagnalistinni. Dagskráin verður fjölbreytt alla helgina. Það verður margt góðra manna og kvenna til að segja sögur frá ýmsum löndum, á ýmsum málum og með ýmsum hætti. Grettisgarðurinn verður opinn öllum og verða þar sagnamenn, víkingar og handverksfólk. Ýmsir leikir verða við hafðir s.s. bogfimi, axarkast, grjótkast, fella og Grettiskúlugrip.  Það verða sagðar súpusögur og fótasögur og bakað brauð sem kallast „iljar Grettis“.

Í Grettisbóli og í Félagsheimilinu Ásbyrgi verða sýningar, fyrirlestrar og uppákomur. Hanna Margret Snorradóttir leikari og sagnakona, leiðir fólk inn í töfraheim sögunnar og kennir fólki að ferðast í sögu. Færeyskur danshópur skýrir dansinn út frá sögunni eða söguna út frá dansinum. Hilmar Agnarsson orgelleikari og kórstjórnandi tengir söguna við sönginn. Helgi Þór og hljóðfæraleikarnir syngja og leika sögur. Hljómsveitin Lexía hvetur fólk til þátttöku og segja sína sögu með fótunum. 

Á Bjargi verður kraftakeppni og er það Andrés Guðmundsson kraftakall sem stjórnar aðgerðum. Hátíðin verður sett kl 18.00 föstudaginn 1. ágúst og stendur linnulítið fram til mánudagsins 4. ágúst.  

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga