Laugardagurinn
31. júlí 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
Júlí 2010
SMÞMFFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNúnaNæsti
Kjalfell ehf - Netverslun
Veðurstofa Íslands
Blönduós 00:00 V 1  9°C
Hraun á Ska 01:00 NV 3  7°C
Reykir í Hr 01:00 NNA 3  9°C
Reykjavíkur 01:00 SSV 3  13°C
Akureyri - 01:00 NV 3  10°C
Egilsstaðaf 01:00 S 3  11°C
Haugur 01:00 NA 1  9°C
Skagatá 01:00 NV 3  7°C
Holtavörðuh 01:00 NNA 3  7°C
Þverárfjall 01:00 SV 3  7°C
Laxárdalshe 01:00 ANA 2  8°C
Brúsastaðir 01:00 NNV 1  9°C
Vegagerðin
Holtav.h. 01:40 NNA 2  8 °C
Laxárdalsh 01:30 ANA 3  8 °C
Vatnsskarð 01:30 V 2  8 °C
Þverárfjall 01:40 SV 3  7 °C
Kjalarnes 01:40 S 1  13 °C
Hafnarfjall 01:30 NNA 1  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
02. júní 2010
Júnínöldur
Þó júnímánuður sé byrjaður andar enn köldu inn Húnaflóann og hitatölurnar hafa ekki oft farið í tveggja stafa tölu í vor. Þetta lagast þó á endanum eins og alltaf og sumarið kemur líka til okkar. Nú ætlar Nöldri að nöldra sem aldrei fyrr og fara svo í sumarfrí, vera þá bjartsýnn og njóta lífsins í sól og blíðu.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
07. júlí 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
18. júní 2010
Frá undirskriftarhópi gegn niðurskurði á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
11. júní 2010

tilk_web.gif


Fjölmenni í kirkjunni í dag
Fjölmenni í kirkjunni í dag
Sr. Sveinbjörn þjónaði fyrir altari
Sr. Sveinbjörn þjónaði fyrir altari
Hólabiskup vígði nýja pípuorgelið
Hólabiskup vígði nýja pípuorgelið
Sr. Úrsúla, Kristín djákni og Sr. Jón A. Hólabiskup
Sr. Úrsúla, Kristín djákni og Sr. Jón A. Hólabiskup
Skarphéðinn, Þórhallur og Sísa
Skarphéðinn, Þórhallur og Sísa
Kirkjukórinn söng vel að vanda
Kirkjukórinn söng vel að vanda
Fréttir | 15. nóvember 2009 - kl. 19:08
Nýtt pípuorgel vígt í Blönduóskirkju í dag

Í dag var nýja pípuorgelið í Blönduóskirkju vígt við fjölmenni en kirkjan var nær fullsetin. Smíði orgelsins hófst í september 2007 og er mikil listasmíði. Orgelið ber ópustöluna 30 frá orgelverkstæði Björgvins Tómassonar á Stokkseyri. Smíði hljóðfærisins önnuðust Björgvin Tómasson, Egill Björgvinsson, Guðmundur Gestur Þórisson, Jóhann Hallur Jónsson og Júlíus Óttar Björgvinsson.

Orgelhúsið er smíðað úr evrópskri eik og einnig allar trépípur þess, 72 að tölu. Málmpípur eru smíðaðar úr hinum ýmsu tin- og blýblöndum en samtals hefur hljóðfærið 1.245 pípur. Hljóðfærið hefur mekanísk nótnaborðstengsl og rafstýrð raddtengsl með 192 forvalsmöguleikum. Hljóðfærið hefur 21 rödd sem skiptast á tvö hljómborð og pedal.

Sr. Jón A. Baldvinsson, biskup á Hólum vígði orgelið og predikaði, Sr. Sveinbjörn R. Einarsson þjónaði fyrir altari, kór Blönduósskirkju söng, Þórhallur Barðason söng einsöng og þeir Einar Bjarni og Höskuldur Sveinn Björnssynir og Skarphéðinn H. Einarsson spiluðu á málmblásturshljóðfæri ásamt Sólveigu S. Einarsdóttur organista.

Að lokinni athöfninni var boðið til kaffisamsætis í Félagsheimilinu á Blönduósi í boði sóknarnefndar en þar voru flutt nokkur ávörp og Þórhallur söng einsöng við undirleik Benedikts Blöndal.

Höf. ass
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Spaugið
25. mars 2010
Er sagan svona í hnotskurn?
Guð byrjaði með að skapa asnann og sagði síðan við hann: – Þú ert Asni. Þú átt eftir að þræla hvern einasta dag og verður sagður heimskur.
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið