Fréttir | 26. janúar 2010 - kl. 18:43
Íbúafundir um tillögur að aðalskipulagi

Blönduósbær og Húnavatnshreppur boða til almennra íbúafunda í næstu viku um tillögur að aðalskipulagi sveitarfélaganna 2010 til 2022. Íbúafundurinn um tillögur að aðalskipulagi Blönduóssbæjar verður haldinn þriðjudaginn 2. febrúar og hefst hann klukkan 17 á Hótel Blönduósi. Íbúafundurinn í Húnavatnshreppi verður haldinn mánudaginn 1. febrúar og hefst hann klukkan 20 í Húnavallaskóla.

Á fundunum verða kynntar tillögur að landnotkun fyrir viðkomandi sveitarfélag í heild og þéttbýlið á Blönduósi annars vegar og á Húnavöllum hins vegar og auk þess umhverfisskýrsla aðalskipulagsins.

Í aðalskipulagi er mörkuð stefna sveitarstjórnar um landnotkun í sveitarfélaginu til framtíðar. Tekin eru frá svæði fyrir samgöngu- og þjónustukerfi, atvinnusvæði, íbúðarbyggð, frístundabyggð, verndarsvæði o.fl.

Megin tilgangur fundanna er að gefa íbúum og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögunni til auglýsingar. Skipulagsráðgjafar frá Landmótun gera grein fyrir tillögunum og taka á móti athugasemdum á báðum fundunum.

Fulltrúi Vegagerðarinnar mun kynna tillögu að nýjum stofnvegi, Húnavallaleið, á fundinum á Húnavöllum.

Íbúar Blönduóssbæjar og Húnavatnshrepps eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga