
Buick Super ´47 og Sólfarið. Ljósm: Úlfur H. Hróbjartsson
Húnavaka 2010 | 15. júlí 2010 - kl. 13:56
Á laugardaginn mun Buick Super árgerð 1947 snú aftur á Blönduós eftir 22 ára fjarveru er eigandi hans, Evert Kr. Evertsson, mun aka honum frá Reykjavík árla morguns norður. Áætlar Evert að vera á Blönduósi á milli kl. 12:00 – 17:00 og gefst þá gestum kostur á því að skoða bifreiðina. Evert keypti bílinn árið 2007 og er hann fjórði eigandi bílsins frá því að hann var seldur frá Blönduósi.
Upphaflega var Buickinn fluttur inn árið 1948 og fékk númerið H-216 en hann var brúðkaupsgjöf til Óskars Sövik og Sólveigar Benediktsdóttur Sövik frá bróður Óskars sem var tannlæknir í Chicago. Bíllinn var einungis ekinn 1 kílómeter við komuna til landsins. Óskar tók miklu ástfóstri við bifreiðina og til að mynda komst hann aldrei í tæri við rigningu eða snjó og yfir vetrarmánuðina var hann geymdur inni í bílskúr þar sem dekkin voru tekin undan bifreiðinni og hann settur á tjakka til að dekkin skemmdust ekki.
Góð er sagan af því er skoðunarmaður kom í bæinn til að skoða bíla bæjarins. Óskar kom með Buickinn og skildi hann eftir þar sem hann mátti ekki vera að því að bíða eftir skoðunarmanninum. Er hann kom aftur til að sækja bílinn var ekki búið að skoða bílinn og skoðunarmaðurinn sagðist ekki vera búinn þar sem hann kynni ekki að starta bílnum. Óskar tók þá lyklana og sagði að ef hann kynni það ekki gæti hann varla skoðað bílinn og fór og bíllinn var ekki skoðaður í nokkur ár eftir það.
Það var síðan árið 1973 að bílnum var komið í geymslu enn og aftur og ekki tekinn út úr geymslunni fyrr en árið 1988 að honum var ekið suður til Reykjavíkur en síðan þá hafa fjórir átt bílinn og hefur lítið verið átt við bílinn annað en að skipta um teppi, dekk, perur og eitthvað smálegt.
Heimild: http://www.fornbill.is/forsida2009/buick.pdf