Fimmtudagurinn
9. september 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
September 2010
SMŢMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNćsti
Kjalfell ehf - Netverslun
Veðurstofa Íslands
Blönduós 14:00 NV 2  14°C
Hraun á Ska 14:00 ASA 8  12°C
Reykir í Hr 14:00 N 5  11°C
Reykjavíkur 14:00 SA 6  14°C
Akureyri - 14:00 SA 3  14°C
Egilsstaðaf 14:00 VNV 2  13°C
Haugur 11:00 A 8  14°C
Skagatá 14:00 ASA 8  12°C
Holtavörðuh 14:00 N 4  10°C
Þverárfjall 14:00 A 4  15°C
Laxárdalshe 14:00 ANA 6  11°C
Brúsastaðir 14:00 ASA 10  15°C
Vegagerðin
Holtav.h. 14:40 NNV 4  10 °C
Laxárdalsh 14:40 ANA 7  11 °C
Vatnsskarð 14:40 A 7  12 °C
Þverárfjall 14:40 ASA 2  15 °C
Kjalarnes 14:40 A 8  13 °C
Hafnarfjall 14:40 SA 6  16 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
03. september 2010
Septembernöldur
Sumri hallar hausta fer, segir einhversstađar og nú er sá tími kominn, haustiđ er ađ ganga í garđ og sumariđ ađ kveđja. Ekki alveg minn tími, en góđur tími samt. Ţetta er tími kertaljósa á lognkyrrum, rökkvuđum kvöldum. Tímamót hjá börnunum okkar, sem setjast nú á skólabekk og sum hver í fyrsta skipti.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Einar K. Guđfinnsson, alţingismann
08. september 2010
Pistill tekinn af heimasíđu Hvatar
25. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
12. ágúst 2010
Eftir Vigni Hafţórsson
10. ágúst 2010
Eftir Ţórđ M. Jónsson og Finnboga Vikar
08. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norđursins
09. júlí 2010

tilk_web.gif


Húsfrúin | 15. júlí 2010 - kl. 19:06
Sumarið er tíminn

„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um  aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...). Þessi ósk var nefnilega borin fram um leið og ég var að bera sand í stéttina fyrir framan hús og átti eftir að gera það sama fyrir aftan húsið – verkefni sem mér finnst ekkert sérstaklega skemmtilegt en þarf svo sem að gera.

Sumrinu fylgja svo ótalmörg verkefni, sum ótrúlega skemmtileg eins og að njóta sólarinnar úti í garði, ferðast til spennandi staða og hitta vini og ættingja. Sum verkefnin eru líka ótrúlega óspennandi, líklega vegna þess hve endalaus þau eru, eins og að slá garðinn, reita arfa og eltast við fífla sem virðast hafa ofurkrafta. Samt er einhver óútskýranleg fullnægja sem fylgir því að vinna þessi óspennandi verkefni eða kannski réttara sagt að ljúka þeim hverju sinni. Þá lítur allt svo vel út og það er svo sýnilegt hvað maður hefur verið duglegur.

Ég setti mér eitt markmið fyrir þetta sumar, að njóta þess að vera í garðinum mínum, ekki bara vinna þar. Enn sem komið er hefur mér gengið nokkuð vel, búin að njóta nokkurra yndislegra daga og kvölda í góðum félagsskap – en það verður að viðurkennast að vinnustundirnar eru líklega fleiri en þær afslöppuðu. Þá verður nú líka að viðurkennast að vissulega er gaman að mörgum vinnustundanna þó þær geti verið óttalegt púl. Svona er maður stundum „klikk“.

Þetta sumar verður lengi í minnum haft. Sumarið sem sundlaugin okkar var opnuð – þessi paradís sem við höfum hér á besta stað í bænum. Ein ágæt kona hér í bæ skrifaði á vefsíðuna sína nú nýlega: „Hvað var eiginlega gert „fyrir sundlaug“?“ Ég er búin að velta þessum orðum fyrir mér og það bara nokkuð reglulega, líklega daglega um það bil sem ég klæði mig í fötin eftir frábæra ferð í laugina. Þá hef ég líka borið þessa spurningu upp fyrir marga „sundfélaga“ og það virðist bara enginn hafa svar á reiðum höndum. Hvað gerðum við eiginlega áður en við fengum þessa dýrðar laug?

Eitt af því dásamlega sem fylgir sundferðunum, fyrir utan hreyfinguna auðvitað, er að hitta endalaust margt skemmtilegt fólk. Og þetta fólk er undantekningalaust brosandi hringinn. Svo er spjallað og spjallað og spjallað. Sundlaugin er í raun eins og ein risastór félagsmiðstöð, í hana koma bæjarbúar, brottfluttir og ferðamenn og það er bara alveg „geðveikt“ eins og dóttir mín orðar það svo skemmtilega þegar hún þarf að leggja þunga áherslu á eitthvað.

Ég er búin að komast að því að þessum svo til daglegu sundferðum fylgja tveir leiðinda ókostir. Fyrri ókosturinn er að það er svo ótrúlega leiðinlegt að fara uppúr – það er í það minnsta skoðun yngsta barnsins. Eftir að hafa heyrt „nei“ hátt og skýrt þegar tilkynnt var um að nú væri kominn tími til að fara í sturtu þá þurfti ég að ræða þetta mál alvarlega við dömuna. Ég gekk meira að segja svo langt að hóta pásu á sundferðunum þó svo mér væri það þvert um geð því ég vil alls ekki missa af ferð í sund og ég hóta (helst) ekki neinu sem ég ekki get staðið við. Sem betur fer dugði þetta og nú gengur betur og betur að komast uppúr.

Hinn ókosturinn við sundferðirnar er að nú fer ég næstum aldrei í sturtu heima hjá mér frekar en aðrir heimilismeðlimir. Margir gætu talið að það væri nú ekki slæmt þar sem hitaveitureikningurinn mun að öllum líkindum lækka og vissulega er það ánægjulegt. Það er hins vegar verra með þessa reglulegu snyrtingu sem maður framkvæmir í sturtunni heima... Ég hrökk í kút þegar nokkuð var liðið frá sundlaugaropnuninni þegar ég tók eftir því að þessi þáttur hafði bara alveg gleymst í allri gleðinni yfir nýju sundlauginni. Var þessu kippt í liðinn og nú fer ég reglulega í „auka-sturtu“ heima til að búa ekki til of mikla mótstöðu í sundinu... 

Hvað sem þessu líður þá er ég alsæl, bæði með sumarið og verkefnin sem því fylgja og nýju sundlaugina. Það er bara svo gaman að vera til.

 

Góðar stundir

Húsfrúin  

Höf. mbb
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvađ til,“ ţetta datt mér í hug um daginn ţegar ég var beđin af yngsta barninu um ađstođ viđ ađ rađa inn í kofann í garđinum. Ţar ţurfti ađ viđra, sópa, flokka og rađa (og fjarlćgja - en viđ rćđum ţađ ekkert nánar hér...).
::Lesa
Sveitabakarí
Spaugið
07. ágúst 2010
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð?"
Barţjónn: Nei. Önd: Áttu brauđ? Barţjónn: Nei. Önd: Áttu brauđ?
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahorniđ