Fimmtudagurinn
9. september 2010
Sparisjóður Húnaþings og Stranda
Á döfinni
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti
Kjalfell ehf - Netverslun
Veðurstofa Íslands
Blönduós 14:00 NV 2  14°C
Hraun á Ska 15:00 A 5  12°C
Reykir í Hr 14:00 N 5  11°C
Reykjavíkur 15:00 SSA 6  14°C
Akureyri - 14:00 SA 3  14°C
Egilsstaðaf 15:00 S 3  12°C
Haugur 11:00 A 8  14°C
Skagatá 15:00 A 7  11°C
Holtavörðuh 14:00 N 4  10°C
Þverárfjall 14:00 A 4  15°C
Laxárdalshe 14:00 ANA 6  11°C
Brúsastaðir 14:00 ASA 10  15°C
Vegagerðin
Holtav.h. 15:00 NNV 3  11 °C
Laxárdalsh 14:50 ANA 7  11 °C
Vatnsskarð 14:50 A 6  12 °C
Þverárfjall 15:00 ASA 4  15 °C
Kjalarnes 15:00 ASA 7  14 °C
Hafnarfjall 14:50 SA 7  14 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
03. september 2010
Septembernöldur
Sumri hallar hausta fer, segir einhversstaðar og nú er sá tími kominn, haustið er að ganga í garð og sumarið að kveðja. Ekki alveg minn tími, en góður tími samt. Þetta er tími kertaljósa á lognkyrrum, rökkvuðum kvöldum. Tímamót hjá börnunum okkar, sem setjast nú á skólabekk og sum hver í fyrsta skipti.
::Lesa

Vöruland

Northwest.is


SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
08. september 2010
Pistill tekinn af heimasíðu Hvatar
25. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
12. ágúst 2010
Eftir Vigni Hafþórsson
10. ágúst 2010
Eftir Þórð M. Jónsson og Finnboga Vikar
08. ágúst 2010
Eftir Kristinn H. Gunnarsson
20. júlí 2010
Pistill eftir Jónas Skaftason, Vert á Ljóni norðursins
09. júlí 2010

tilk_web.gif


Fréttir | 28. júlí 2010 - kl. 08:12
Málþing um Guðrúnu frá Lundi
Ketilási í Fljótum, Skagafirði, 14. ágúst kl. 14

Guðrún Árnadóttir skáldkona kenndi sig ávallt við fæðingarbæ sinn Lund, sem er í Austur Fljótum í svokallaðri Stíflu. Fljótin eru í nyrsta byggðarlagi Skagafjarðar. Hugur er í Fljótamönnum sem ætla að heiðra minningu skáldkonunnar í sumar með því að halda málþing undir heitinu Er enn líf í Hrútadal? og verður það laugardaginn 14. ágúst að Ketilási í Fljótum. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun opna málþingið.

Erindi flytja:
Guðjón Ragnar Jónasson MA. í íslenskum fræðum: Hrútadalur og Fljótin.

Marín Guðrún Hrafnsdóttir,  bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar: Er Guðrún frá Lundi langamma þín?

Ármann Jakobsson dósent: Er Katla að gjósa? Illu komið til leiðar í Dalalífi.

Ásta Kristín Benediktsdóttir MA. í íslenskum bókmenntum: Er líf eftir Dalalíf? Hugleiðingar um bækur Guðrúnar frá Lundi.

Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi: Hvernig getur menningin orðið stóriðja sveitanna?

Í kaffihléi les Ingunn Snædal ljóð þar sem leiðarstefið er hin fagra sveit.

Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir málþing og kaffi.  Síðan verður slegið upp harmonikkuballi um kvöldið þar sem andblær hins liðna fær að njóta sín.  Félagar úr harmonikkufélagi Skagafjarðar leika fyrir dansi og byrjar ballið kl. 22:00 og stendur til 02:00, eins og var siður hér á árum áður. 

Frítt er á tjaldstæðið við Ketilás. Aðrir gistimöguleikar eru á Sólgörðum s. 467-1054 og á Bjarnagili s. 467-1030.

Höf. rzg
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila
Húsfrúin
15. júlí 2010
Sumarið er tíminn
„Alltaf leggst manni eitthvað til,“ þetta datt mér í hug um daginn þegar ég var beðin af yngsta barninu um aðstoð við að raða inn í kofann í garðinum. Þar þurfti að viðra, sópa, flokka og raða (og fjarlægja - en við ræðum það ekkert nánar hér...).
::Lesa
Sveitabakarí
Spaugið
07. ágúst 2010
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð?"
Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð? Barþjónn: Nei. Önd: Áttu brauð?
::Lesa

Vefmyndavél


Vinir Kvennaskólans



Vinnumálastofnun


Vefmyndavél

 

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga
 
©2010 Húnahornið