Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:19 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að gerð myndbands um Leikskólann Barnaból á Skagaströnd í tilefni 35 ára afmælis skólans. Verkefnið er unnið í samstarfi leikskólans og Nes listamiðstöðvar en Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið.
Nes listamiðstöð auglýsti eftir listamanni til að koma til Skagastrandar og búa til heimildamyndina og valdi AnneMarie van Splunter frá Hollandi, úr hópi 30 umsækjenda frá 18 löndum. Nemendur í myndbandagerð í grunnskólanum og tónlistarmenn á staðnum taka einnig þátt í verkefninu. Connie Dekker, sem er hollenskur listamaður, mun sjá um ljósmyndaáttinn í verkefninu.
Þegar myndin er tilbúin verður forsýning hér á Skagaströnd en einnig mun myndin verða á heimasíðu Nes listamiðstöðvar og listamannanna sjálfra.
AnneMarie vill gjarnan að allir núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsfólk Barnabóls séu þátttakendur í þessu verkefni.
Ef þú, lesandi góður, eða börnin þín hafa einhvern tímann verið á leikskólanum þætti okkur vænt um að þú hefðir samband við AnneMarie; á netfanginu: annemarievansplunter@orange.nl, í farsímann hennar: 0031613018821 eða bara líta við í Nes listamiðstöð. Hún mun verða mjög glöð að sjá þig/ykkur.
Myndatakan mun aðeins taka 1-2 mínútur, bara myndataka - engin viðtöl. Ef þú vilt láta taka mynd af þér á einhverjum sérstökum stað eða t.d. með uppáhaldshattinn þinn þá er það bara skemmtilegra.
Nánari upplýsingar um listamennina:
AnneMarie van Splunter (1962) stundaði nám við Willem de Kooning listaháskólann í Rotterdam en á heima og starfar í Amsterdam. Listaverk hennar eru mjög fjölbreytt og úr margvíslegum efnum. Sjá nánar: www.annemarievansplunter.nl og www.conniedekker.nl
Þú getur fylgst með framvindu verkefnisins á vefsíðunni: www.conniedekker.nl/iceland
Heimild: www.Skagastrond.is
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |