Fréttir | 19. mars 2013 - kl. 07:20
„Lífsafkomu bænda ógnað“

Sveitarstjórn Húnaþings vestra mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að engum fjármunum verði varið til viðhalds sauðfjárveikivarnargirðinga á landinu á þessu ári. Það er álit sveitarstjórnar að með þessari ráðstöfun sé áratuga starfi tengt vörnum við útbreiðslu búfjársjúkdóma stefnt í mikla tvísýnu sem kunni að hafa ófyrirsjáanlegar og kostnaðarsamar afleiðingar í för með sér.

Þetta kemur kemur fram í fundargerð sveitarstjórnarfundar Húnaþings vestra frá 14. mars síðastliðinn. Þar segir einnig að verði ákvörðun þessari ekki breytt og fjármunir til viðhalds girðinganna tryggðir nú þegar af hlutaðeigandi stjórnvöldum sé lífsafkomu bænda ógnað vegna hættu á útbreiðslu alvarlegra búfjársjúkdóma og sé ábyrgð þeirra sem í hlut eigi því mikil.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra tekur heilshugar undir ályktun Búnaðarþings 2013 þar sem þungum áhyggjum er lýst af sama tilefni og hér um ræðir. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda álit sveitarstjórnar til Matvælastofnunar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, atvinnuveganefndar Alþingis og alþingisþingmanna Norðvesturkjördæmis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga