Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nú líður að páskum, passíusálmar verða lesnir í Blönduóskirkju að kvöldi föstudagsins langa, kórinn syngur milli lestra og einnig kl. 8 á páskadagsmorgni þegar hátíðarmessa verður í kirkjunni. Á þriðjudagskvöldi, hittust til æfinga í Svínavatnskirkju, aðstandendur fermingarbarna og sóknarmenn úr Svínadal, Blöndudal og af Hálsum svo organisti bregði fyrir sig málfari Sturlungualdar en þar voru bæir austanvert við vatnið heimfærðir svo. Fermt var svo í Svínavatnskirkju að morgni skírdags en síðdegis var messa og altarisganga í Baðstofunni á Héraðshælinu. Mjög fjölsótt var í báðum messunum og fáeinir stóðu í fermingarmessunni.
En aðeins meira um landafræði og prestsdætur við Svínavatn, en fyrir enda vatnsins þurftu Auðkúluprestar að krækja þegar þeir riðu á annexíuna á Svínavatni. Á veturnar lagði vatnið og styttist þá drjúgum kirkjuvegurinn. Auðkúluprestakall var eftirsótt brauð og fylgdi því m.a.s. kirkjujörð ætluð prestsekkjunni þegar svo bar við. Þessi jörð heitir Litlidalur og þaðan komu kennslukonur og forstöðukonur til Kvennaskólans á Ytri-Ey og Blönduósi sem voru líka prestsdætur frá Auðkúlu. Þær voru dætur sr. Jóns Þórðarsonar Auðkúlu og systur Þóru Jónsdóttur tengdamóður sr. Gunnars Árnasonar á Æsustöðum.
Gleðilega páskahátíð.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |