Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:50 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Vorið mettar allt af ást
upp þá léttir hríðum
fannablettir burtu mást
blómin spretta í hlíðum. GÓ
http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=g0&ID=15297
Milli áfanga með ýmsum nöfnum, skiptast ævi- og starfsdagarnir, við reynum að sinna amstri og úrlausnarefnum þeim sem Hr. Tími leggur á borðin morgun hvern. Að kvöldi sést hvað áunnist hefur en stundum þarf mörg ár til að sjá árangur skila sér. Stundum duga ekki áratugir. Margt ber fyrir augu á leiðinni, suma þjösnast áfram og reyna þannig að troðast fram úr hinum, svo gefa aðrir sér tíma til að greiða fyrir náunganum en allir eiga samleið og eru samferðamenn. Þeir hinir sömu gefa sér tíma til að stíga af baki og taka stein úr götu svo greiðfærara verði þeim sem næstur kemur.
Sveitungi minn, Sigurjón frá Fossum fæddist 30. mars 1935 og mánudaginn í kyrruviku hefur hann náð áttræðisaldri. Hann stundaði búskap framan af ævi en vann mörg haust á sláturhúsinu á Blönduósi svo haustin urðu honum anna- og erfiðistími. Heiðagöngur og fjárrag hafa lengi fylgt Fossabændum og Sigurjón lét þar ekki sitt eftir liggja. Hann tók þátt í ýmsum félögum meðan hann bjó heima í dalnum, sat í hreppsnefnd, var formaður Húnaversnefndar og tók þátt í starfi karlakórsins. En að því kom að Fossabóndinn brá búi, flutti til Blönduóss fyrir nær 2 tugum ára, keypti sér hús út við ósinn og fékk starf í Mjólkurstöðinni. Á Blönduósi var reyndar einn kórinn enn sem hann starfaði með, samkórinn Björk, en hann gekk líka í kirkjukórinn og starfar þar enn í dag. Hann á mörg spor í kirkjunni sem og handtök. Þangað kemur hann jafnan hálftíma fyrir kóræfingu til að hella upp á kaffi. Svo færir hann hlýju í húsið, er sjálfur alúðarmaður, traustur og öruggur söngmaður, býr yfir góðgirni og trúu minni og lætur fjúka í kviðlingum á góðri stund. Sigurjón er sístarfandi, eldri borgarar og starfið í Hnitbjörgum á honum ýmislegt að þakka sömuleiðis Lionsklúbburinn. Við höfum endurnýjað gömul kynni á þeim tveim árum sem ég hef starfað við kirkjuna hér á Blönduósi og vil þakka Sigurjóni fyrir fjölmargar góða stundir.
Athafnir og messur um bænadaga og páska:
Messað verður á Héraðshælinu á skírdag 2. apríl kl. 17
Passíusálmar og söngur í Blönduóskirkju á föstudaginn langa kl. 20
Fermingarmessa á Svínavatni laugard. 4.apríl kl. 11
Árdegismessa í Blönduóskirkju páskadag 5. apríl kl. 8
Sjá Gluggann hér í Húnahorninu.
Veljum okkur hringhendu Ólafs frá Forsæludal:
Faðmlög stíf við frost og snjó
fæstir lýðir velja.
Ei skal kvíða köldum þó
kossum hríðarélja. ÓS
http://stikill.123.is/blog/2007/08/20/139201/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |